Starfsmaður í borðsal - Hrafnista Sléttuvegi
Hrafnista
Hrafnista Sléttuvegur

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling í borðsal heimilisins.

Um 80% starfshlutfall er að ræða. Viðkomandi kemur með að vinna dagvaktir á virkum dögum og u.þ.b. tvær helgar í mánuði.

Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf í ágúst/september.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn eldhús- og framreiðslustörf

Þjónusta íbúa og aða þjónustuþega

Framreiðsla og undirbúningur á mat á matar- og kaffitímum

Almenn afgreiðsla

Frágangur og þrif

Undirbúningur funda og annara uppákoma

Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Frumkvæði og sjálfstæði

Íslenskukunnátta skilyrði

Framúrskarandi samskiptahæfileikar

Heiðarleiki og jákvæðni

Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Tailor & apply in AIApply
Get AI resume feedback matched to this job description, then export and apply.